1600 milljarða afföll

Nýju bankarnir keyptu fyrirtækjalán af gömlu bönkunum á að meðaltali um 40% af kröfuvirði við yfirfærslu frá gömlu bönkunum. Afföllin voru því um 1600 milljarðar króna miðað við upphaflegan efnahagsreikning bankanna þriggja.

Þetta kemur fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra á Alþingi við fyrirspurn frá Ásbirni Óttarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins.

Þar segir einnig, að nýju bankarnir hafi keypt húsnæðislán að meðaltali á 72% af kröfuvirði við yfirfærslu frá gömlu bönkunum. Afföllin hafi því verið samtals 90 milljarðar króna miðað við upphaflegan efnahagsreikning nýju bankanna þriggja.

Um þriðjungur húsnæðislána bankanna varð eftir í gömlu bönkunum við hrun bankakerfisins í október 2008. 

Svarið í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK