Dýrast í Noregi - ódýrast á Íslandi

Fjárfestingarvörur, bæði vélbúnaður og hugbúnaður, voru á síðasta ári dýrastar í Noregi en ódýrastar á Bretlandseyjum og á Íslandi, samkvæmt tölum frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sem bar saman verð á þessum vörum í 37 Evrópuríkjum. 

Fram kemur í umfjöllun norsku hagstofunnar um þetta, að lítill munur hafi þó verið á verðinu milli landa. Þannig hafi vöruverðið í Noregi verið 17% yfir meðaltalinu og munurinn á Noregi og Bretlandi var 31%. 

Norska hagstofan segir, að Ísland og Bretland séu sér á parti í þessari könnun. Þetta komi nokkuð á óvart vegna þess að árið 2007 hafi fjárfestingavörur verið einna dýrastar á Íslandi og verðið svipað og í Noregi.   Ástæðan fyrir þessari breytingu sé gengislækkun bæði íslensku krónunnar og breska pundsins gagnvart öðrum Evrópumyntum. Þess vegna virðist vörurnar vera ódýrari þegar horft sé á verðið frá útlöndum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK