Verðhækkanir á matvöru í vetur

Skemmdur maís vegna hita á kornakri í Iowa
Skemmdur maís vegna hita á kornakri í Iowa AFP

Verð á maís og sojabaunum hefur síðustu mánuði hækkað gífurlega og fór verð á maís sem er til afgreiðslu í desember upp um 2% síðast í gær og hefur hækkað um tæplega 60% síðustu tvo mánuði. Á sama tíma hafa sojabaunir farið upp um rúmlega 30% og ekki virðist sjá fyrir endann á þessum hækkunum. Miklir þurrkar hafa verið í Bandaríkjunum það sem af er sumri og er búist við að stór hluti uppskerunnar muni gefa lítið af sér eða sé jafnvel ónýtur. 

Líklegt er að miklar hækkanir á þessum vörum hafi áhrif á matvöru og búvörur, en maísmjöl er t.d. notað í fjöldann allan af matvörum auk þess sem tvær af aðalgrunnstoðum í kjarnafóður fyrir búfénað er maís og sojabaunir. Mbl.is ræddi við Bergþóru Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra Líflands, um áhrif þessara hækkana hérlendis og væntanlega vöruverðshækkun.

Framleiðsla landbúnaðarafurða hækkar

„Maís og soja eru undirstaðan undir alla búfjárframleiðslu í grófum dráttum, þ.e.a.s. kjöt- og mjólkurframleiðslu, þó aðrir hlutir komi til eins og hey og heimafengið bygg“ segir Bergþóra. Almennt má segja að 35-50% af innihaldi kjarnafóðurs sé gert úr þessum tveimur grunnstoðum. „Þetta hefur þau áhrif að kostnaðarverð við framleiðslu landbúnaðarafurða hækkar“ og telur hún að búast megi við hækkunum hérlendis þegar komið sé fram á veturinn. 

Segir Bergþóra að þessar hækkanir muni sérstaklega eiga við um svína- og kjúklingarækt þar sem slík framleiðsla byggi nær alfarið á kjarnafóðri. Í mjólkur- og kindakjötsframleiðslu er notað töluvert af heyi og öðrum fóðurgjöfum og því ættu áhrifin þar að vera minni, þó þau muni væntanlega einnig koma fram. Segir hún að búast megi við fínu byggári hérlendis, þrátt fyrir þurrka, þar sem ýmis svæði hafi fengið góða vætu. Það gæti því að einhverju móti vegið upp á móti hækkunum á erlendum aðföngum.

Miklir þurrkar og hitaskeið

Lítið sem ekkert hefur rignt í miðríkjum Bandaríkjanna þar sem einhverjir stærstu maís- og sojabaunaakrar heims finnast. Maísuppskeran verður slæm en sérfræðingar segja enn von fyrir sojabaunirnar, því þær eru ennþá óþroskaðar og gætu grætt á rigningu, ef hún fellur fljótlega.

Eins og kom fram í frétt mbl.is í gær var júlí heitasti mánuður á meginlandi Bandaríkjanna síðan mælingar hófust og hafa síðustu 12 mánuðir verið þeir hlýjustu samfellt í Bandaríkjunum frá upphafi mælinga 1895.

Frekari hækkanir líklegar

Í dag verður birt skýrsla í Bandaríkjunum um stöðu mála í maísrækt og segir Bergþóra að flestir geri ráð fyrir að hún muni staðfesta verri afkomu en upphaflega var búist við. Því sé ekki ólíklegt að verð muni hækka enn frekar á næstunni. Uppskera á maís er seinnipart hausts og er viðbúið að sú uppskera verði slök. Bíða verður fram í febrúar eftir uppskeru á sojabaunum og því ekki viðbúið að verð fari mikið lækkandi fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót. Fyrir 2 vikum var gert ráð fyrir að hækkandi verð á maís og sojabaunum myndi skila sér í 3 til 4% hækkun matvæla bæði í ár og á næsta ári í Bandaríkjunum. Síðan þá hefur verðið lítið annað gert en að fara upp og því líklegt að matvæli hérlendis muni hækka um rúmlega þá tölu að öðru óbreyttu.

Bergþóra Þorkelsdóttir.
Bergþóra Þorkelsdóttir. Morgunblaðið/Ernir
Uppskera á sojabaunum í Brasilíu
Uppskera á sojabaunum í Brasilíu AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK