Coca Cola nýtir QuizUp

Þorsteinn Baldur Friðriksson.
Þorsteinn Baldur Friðriksson. mbl.is/Rósa Braga

Coca-Cola er einn aðalstyrktaraðili HM í Brasilíu og beitir fjölmörgum aðferðum til að ná til knattspyrnuáhugamanna meðan á mótinu stendur. Ein leiðin felst í samstarfi við íslenska leikjafyrirtækið Plain Vanilla um að bjóða notendum QuizUp upp á sérstaka spurningarflokka tengda heimsmeistarakeppninni.

Þorsteinn Baldur Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, segir HM einstakan kynningarvettvang og Coca Cola hafi fundist spurningaleikurinn frábær leið til að rifja upp sögu mótsins. „Við höfum sagt að við viljum frekar vinna með þekktum vörumerkjum að því að búa til skemmtilegt efni fyrir notendur QuizUp, heldur en að troða inn truflandi auglýsingum.“

Fleiri verkefni í pípunum

Í QuizUp má nú finna meira en 18 þúsund HM-spurningar í 40 flokkum í boði Coke. Þar á meðal eru sérstakir spurningaflokkar sem tengjast HM-sögu hvers þátttökulands í keppninni í Brasilíu. Einnig er að finna í leiknum staðreyndir og ýmsar upplýsingar um fótbolta til að auðvelda nýjum áhorfendum að skilja íþróttina.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Plain Vanilla fer í samstarf við stórfyrirtæki um spurningaflokka í QuizUp. Fyrir skömmu styrkti tæknirisinn Google spurningaflokk þar sem notendur fengu að sjá myndir sem er að finna í Google Earth forritinu og áttu þeir að giska á hvar í heiminum myndirnar voru teknar.

Fleiri slík verkefni eru í pípunum hjá Plain Vanilla, að sögn Þorsteins.

QuizUp er nú hægt að spila á fimm tungumálum; ensku, frönsku, spænsku, þýsku og portúgölsku. Búist er við að spurningar á kínversku, tyrknesku og rússnesku bætist við áður en langt um líður. Fyrstu vikuna sem QuizUp var fáanlegt á þýsku spiluðu notendur leikinn í  alls 175 þúsund klukkustundir. Að meðaltali hafa notendur QuizUp spilað sex milljónir leikja á hverjum degi síðan leikurinn kom út í nóvember og eyða um 30 mínútum í leiknum á degi hverjum. 

Yfir 22 milljónir manna í 230 löndum hafa náð í QuizUp en í honum er að finna meira en 220 þúsund spurningar í rúmlega 400 flokkum.

Skjáskot af HM spurningaflokknum í boði Coke í QuizUp.
Skjáskot af HM spurningaflokknum í boði Coke í QuizUp.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK