Athugunarmerking hefur verið fjarlægð af hlutabréfum Eimskipafélags Íslands hf. með vísan til umfjöllunar um rannsókn Samkeppniseftirlitsins í afkomutilkynningu félagsins sem birt var í gær.
Í tilkynningunni segir að hvað rannsókn Samkeppniseftirlitsins varðar hafi Eimskip engar frekari upplýsingar um hana en þær sem þegar hafa verið birtar. Félagið hafnar þar með öllu ásökunum um brot á samkeppnislögum og er umfjöllun Kastljóss RÚV sem byggði á upplýsingum sem þangað var lekið ekki sögð veita frekari upplýsingar um grundvöll rannsóknarinnar.
Þá segir að félagið hafi með bréfi til Sérstaks saksóknara annars vegar og Samkeppniseftirlitsins hins vegar krafist aðgangs að þeim gögnum sem lekið var. Sérstakur saksóknari hafi hins vegar formlega hafnað beiðninni með vísan til ákvæða laga um meðferð sakamála með þeim rökum að réttur til afhendingar gagna verði ekki virkur fyrr en kærður maður eða lögaðili verður sakborningur í skilningi laganna. „Félagið getur því ekki aðhafst frekar gagnvart Sérstökum saksóknara,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að Samkeppniseftirlitið hafnaði formlega beiðni félagsins um aðgang að þeim gögnum sem lekið var með þeim rökum að umrædd gögn, kæran og fylgiskjöl, séu undanþegin upplýsingarétti í málinu. Þá ákvörðun hefur félagið hefur kært til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Athugunarmerkingin var sett á bréfin þann 16. október sl. á grundvelli ákvæðis í reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga á NASDAQ OMX Iceland þar sem segir að bréf skuli sett á athugunarlista ef fyrir hendi eru aðstæður sem leiða af sér umtalsverða óvissu varðandi félagið eða verðmyndun verðbréfanna. Í tilkynningu Kauphallarinnar sagði að merkingin hefði verið sett á bréfin vegna fyrrgreindar rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á ólögmætu samráði félagsins og Samskipa og hugsanlegri misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
Í reglum NASDAQ OMX Icelandsegir að markmiðið með athugunarlistanum sé að gefa merki til markaðarins um að sérstakar aðstæður séu hjá félaginu eða hlutabréfum þess sem fjárfestar ættu að gefa gaum.
Samkeppniseftirlitið hefur kært ellefu manns til embættis Sérstaks saksóknara vegna gruns um að félögin hafi um árabil haft með sér ólöglegt samráð. Á meðal þeirra eru Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, og Ásbjörn Gíslason, fyrrverandi forstjóri Samskipa, sem nú stýrir Samskip Logistic í Hollandi og Pálmar Óli Magnússon, núverandi forstjóri Samskipa.
Frétt mbl: Hlutabréf Eimskips á athugunarlista