Rannsókn leiðir til falls á markaði

Höfuðstöðvar Renault í Boulogne-Billancourt, vestur af París.
Höfuðstöðvar Renault í Boulogne-Billancourt, vestur af París. AFP

Hlutabréf í franska bílaframleiðandanum Renault hafa lækkað um 20% í verði  í kauphöllinni í París eftir að tilkynnt var um að starfsmenn samkeppniseftirlitsins væru að störfum í starfstöðvum þess. Er jafnvel talið að rannsóknin beinist að því hvort fyrirtækið hafi svindlað á útblástursprófum líkt og keppninauturinn Volkswagen.

Um klukkan 11:30 hafði Renault lækkað um rúm 20% og eins höfðu hlutabréf keppinautarins Peugeot lækkað um 7%. Greint var frá því í morgun að starfsmenn samkeppniseftirlitsins væru að störfum í nokkrum af starfstöðvum Renault. Meðal annars höfðu þeir á brott með sér tölvur yfirmanna hjá fyrirtækinu. 

Þetta hefur haft áhrif á gengi annarra hlutabréfa í kauphöllinni í París en CAC-40 vísitalan hefur lækkað um tæp 3% það sem af er degi.

Uppfært klukkan 12:34

Stjórnendur Renault hafa staðfest að fyrirtækið sé til rannsóknar en um sé að ræða rannsókn á búnaði sem er notaður í verksmiðjum fyrirtækisins. Í fréttatilkynningu frá Renault kemur fram að fyrirtækið vinni með yfirvöldum að rannsókninni og tekið er fram að ekki hafi verið notaður svindlbúnaður í bifreiðum þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK