Heimagisting í gegnum Airbnb í Reykjavík velti um 46 milljónum evra á síðasta ári sem jafngilda 6,1 milljarði íslenskra króna. Ætla má að þar af hafi um 900 milljónir króna runnið í vasa fyrirtækisins Airbnb en óvíst er hvort að fyrirtæki af þessum toga greiði nokkurn skatt af starfsemi sinni hér á landi.
Hagfræðideild Landsbankans kynnt ítarlegu greiningu á ferðaþjónustunni á ráðstefnu bankans í Hörpu í dag. Deildin hefur aflað gagna um starfsemi Airbnb í Reykjavík í gegnum greiningarfyrirtækið Airdna sem safnar samtímagögnum af vefsíðu Airbnb.
Hagstofa Íslands hefur áður lagt mat á hversu algengt er að ferðamenn notist við Airbnb-íbúðir eða aðra óskráða gististaði en athugun hagfræðideildar bendir til þess að gistingin sé mun umfangsmeiri en mat Hagstofunnar gefur til kynna. Hagstofan áætlar að rétt undir 670 þúsund gistinætur á höfuðborgarsvæðinu öllu hafi verið óskráðar árið 2016 en útreikningar hagfræðideildar benda til þess að þær hafi verið ríflega 1,1 milljón aðeins í Reykjavík og því mögulega allt að 1,4 milljónir á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Hlutfallsleg aukning í þessari tegund gistingar kann að mati hagfræðideildar að skekkja verulega mælingar á útgjöldum ferðamanna, sem og fjölda gistinátta. Ein helsta ástæða þess að erfitt er að nálgast nákvæmar upplýsingar um heildarfjölda gistinátta ferðamanna er sú að hluti framboðsins er óskráður.
Aðgengileg gögn um útleigu Airbnb í Reykjavík ná aðeins yfir tímabilið frá ágúst 2015 til og með ágúst 2017. Í greiningu hagfræðideildar kemur fram að miðað við sambærileg tímabil hafi aukning útleigu árið 2016 numið 152% milli ára. Það sem af er þessu ári hafi vöxturinn haldið áfram en hafi 43% aukning mælst fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra.
Miðað við höfuðborgarsvæðið metur hagfræðideildin að markaðshlutdeild Airbnb hafi verið 40% síðastliðið sumar. Tekið var fram að þar sem upplýsingar um Airbnb-gistingu í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur séu ekki taldar með megi ætla að markaðshlutdeildin sé um 50%. Álykta megi að markaðshlutdeild Airbnb-gistinga af hótelmarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu fari sívaxandi.