ÍNN-Íslands Nýjasta Nýtt ehf., félagið sem rekur sjónvarpsstöðina ÍNN, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Þessu er greint frá í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag.
Um miðjan nóvember greindu stjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar frá ákvörðun sinni um að leggja niður rekstur og var útsendingum hætt sama kvöld. Sögðu þeir ÍNN hafa glímt við mikinn rekstrar- og skuldavanda um árabil.
Þá sagði Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsmaður og stjórnandi þáttarins Hrafnaþing á ÍNN, að hópur velunnara stöðvarinnar ætti í viðræðum við skiptastjóra um kaup á félaginu.