Byggingarkrönum á Íslandi hefur fjölgað sleitulaust frá árinu 2010 og eru þeir nú orðnir fleiri en þeir voru árið 2006. Enn vantar þó nokkuð upp á til að jafna umsvifin árið 2007.
Þetta sýna tölur yfir skoðanir á byggingarkrönum sem Vinnueftirlitið tók saman fyrir mbl.is. Skoða þarf krana við uppsetningu og svo á árs fresti eftir það svo að tölurnar gefa nokkuð góða mynd af stöðunni hverju sinni.
Á tíu ára tímabili frá 1997 til 2007 var nokkuð stöðugur fjölgunartaktur en á tímabilinu fjölgaði skoðunum á byggingakrönum úr 100 í 364. Umtalsverður kippur var á milli 2006 og 2007 þegar fjölgunin nam 33%. Fræg eru orð Robert Z. Aliber, prófessors í alþjóðahagfræði, þegar hann kom til landsins árið 2007 og sagði fjölda byggingarkrana benda til ofhitnunar í hagkerfinu.
Byggingarkrönum fækkaði á árinu 2008 frá fyrra ári en taldar voru 310 skoðanir það ár. Þeim hríðfækkaði árið 2009 niður í 155 og náðu lágmarki árið 2010 í fjöldanum 113. Eftir sleitulausa fjölgun frá árinu 2010 var fjöldi skoðana kominn upp í 277 árið 2016, þremur fleiri skoðanir en árið 2016. Árið 2017 voru taldar 303 skoðanir og vantar því töluvert upp á að fjöldi byggingakrana jafni það sem var árið 2007 þegar skoðanir voru 364 talsins.
Það sem af er ári hefur Vinnueftirlitið framkvæmt 71 skoðun. Ef næstu þrír fjórðungar ársins verða eins og sá fyrsti má gera ráð fyrir að fjöldi skoðana verði 284 og fækki þannig frá síðasta ári.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lét þau ummæli falla í vor að hægt væri að tvöfalda kraftinn í uppbyggingu í borginni ef nógu mikið væri til af byggingarkrönum. „Áhyggjur okkar lúta meira að því að það sé ekki nógu mikið af stórum og öflugum verktökum til að takast á við öll þessi verkefni [...] Það væri hægt að tvöfalda kraftinn ef það væri nógu mikið af krönum og mannskap til þess að gera það,“ sagði Dagur.
Stjórnendur fyrirtækja sem ýmist leigja út eða selja krana sögðu þetta rangt hjá borgarstjóra. Það er nóg til af byggingarkrönum og ef það vantar krana er enginn vandi að fá fleiri. Það sem vantar er nóg af lóðum til að byggja og helst á nýbyggingarsvæðum,“ sagði einn stjórnendanna. „Menn flytja inn krana þegar það er þörf fyrir þá en ekki bara til að eiga þá á lager sér til skemmtunar. Þetta eru dýr tæki.“
Þá sagði Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, að ummæli Dags væru af og frá. „Í samtölum okkar við verktaka kemur í ljós að þau ummæli borgarstjóra að það vanti krana og mannskap til að byggja meira standast ekki skoðun.“