Stýrivextir Seðlabankans óbreyttir

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Verðbólga minnkaði lítillega milli mánaða í október og mældist 7,9%. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig hjaðnað. Áfram eru vísbendingar um að tekið sé að hægja á einkaneyslu og fjárfestingu.

Þetta er í annað sinn í röð sem stýrivextir bankans haldast óbreyttir. 

Óvissa vegna jarðhræringa

Fram kemur að samkvæmt nýrri spá Seðlabankans hafi verðbólguhorfur þó versnað. Spennan í þjóðarbúinu hafi reynst meiri en áður var talið og gengi krónunnar lækkað. Verðbólguvæntingar hafi einnig haldist háar og kostnaðarhækkanir haft meiri og langvinnari áhrif á verðbólgu en áður.

„Þótt áhrif vaxtahækkana undanfarin misseri séu að koma skýrar fram benda verri verðbólguhorfur til þess að það gæti þurft að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar. Þrátt fyrir það hefur peningastefnunefnd ákveðið að halda vöxtum óbreyttum að sinni í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir um efnahagsleg áhrif jarðhræringa á Reykjanesi. Mótun peningastefnunnar á næstunni mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,” segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK