Auðug ríki samþykktu ekki aðgang að vatni sem mannréttindi
Stúlkur með drykkjarvatnspotta í Patna, höfuðstað Bihar-héraðs á Indlandi. Aðgangur að hreinu vatni telst nú formlega til mannréttinda. Reuters
Nokkur auðugustu ríki heimsins sátu hjá þegar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti eftir 15 ára umræður sáttatillögu Bólivíumanna sem kveður á um að aðgangur að hreinu vatni teljist til mannréttinda.
Bandaríkin, Bretland, Kanada og Ástralía auk 37 annarra landa sátu hjá þegar tillagan var samþykkt. Brasilía, Frakkland, Kína, Rússland, Spánn og Þýskaland eru meðal þeirra landa sem samþykktu tillöguna. Samþykktin er ekki lagalega bindandi fyrir aðildarríki SÞ, frekar en mannréttindayfirlýsing SÞ er sjálf þó hún virðist almennt höfð til viðmiðunar þegar mannréttindi ber á góma.
„Þetta er sögulegur dagur fyrir allan heiminn og stórt skref í rétta átt,“ er haft eftir Maude Barlow, sem leiðir baráttuna fyrir vatni í Kanada en hún var áður háttsettur ráðgjafi hjá Allsherjarþingi SÞ hvað varðaði réttinn til vatns. Barlow segir samþykktina koma til með að hafa víðtæk áhrif um allan heim, þar sem sveitarfélög berjist fyrir vatnsréttindum við ríkið eða fyrirtæki sem virði ekki rétt þeirra.
„Vilja réttinn til að selja vatnið“
Barlow lýsti vonbrigðum yfir því að Kanada hefði setið hjá við samþykktina og sagðist telja að hin íhaldssama ríkisstjórn vildi hafa rétt til að selja vatn. Með því að samþykkja að telja vatn til mannréttinda væri falin ákveðin mótsögn í því að gera vatnið að verslunarvöru.
Í samþykktinni var einnig tekið vel í þá beiðni Mannréttindaráðs SÞ að árleg skýrsla sérfræðings SÞ um þær skyldur sem þau mannréttindi fela í sér, að allir hafi aðgang að öruggu drykkjarvatni verði einnig birt framvegis fyrir Allsherjarþinginu.
Þó fulltrúi Þýskalands hjá SÞ hafi fagnað samþykktinni vildi hann sjá skýrari línur um hvaða ábyrgð væri lögð á herðar ríkjum til að tryggja að allir á þeirra landi nytu slíkra mannréttinda.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason EF AÐ ÞÚ ÁTT EKKI PENING , ÞÁ FÆRÐ ÞÚ ... -
Hecademus Leyndardómar vatnsins
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 23. júlí 2011, Erlent 32 létust í lestarslysi
- Fimmtudagur, 27. ágúst 2009, Erlent Josef Motzfeldt nýr formaður Vestnorræna ráðsins
- Miðvikudagur, 5. maí 2010, Erlent Skipulagði barnaníðsferðir
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Erlent Fellibylur gekk yfir Fiji eyjar
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Erlent Lettar selja Rússum heilan draugabæ
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































