Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í dag yfir stuðningi við foreldra barns sem þjáist af sjaldgæfum erfðasjúkdómi. Áður hafði Frans páfi sagt að hann vonaði að læknar leyfðu þeim að annast barnið þar til yfir lýkur.
„Það væri okkur sönn ánægja ef við getum hjálpað #CharlieGard, eins og vinir okkar í Bretlandi og páfinn,“ skrifaði Trump á Twitter.
Gard fæddist í ágúst í fyrra en hann þjáist af fágætum erfðasjúkdómi sem leiðir m.a. til þess að líffæri hans virka ekki sem skyldi. Hann er háður öndunarvélinni og hefur dvalið á gjörgæslu frá því í október. Foreldrar hans, Chris Gard og Connie Yates, hafa barist fyrir því að fá Charlie í sína umsjá til að fara með hann í tilraunameðferð í Bandaríkjunum.
Fjallað hefur verið um málið á öllum dómstigum í Bretlandi en í síðustu viku komst Mannréttindadómstóll Evrópu að þeirri niðurstöðu að læknum væri heimilt að taka hinn 10 mánaða Charlie Gard úr öndunarvél. Drengsins biði ekkert nema þjáning og batahorfurnar væru engar.