Foreldrum hins ellefu mánaða gamla Charlie Gard, sem þjáist af banvænum sjúkdómi, hafa verið gefnar 48 klukkustundir til að leggja fram ný gögn sem sýna fram á að tilraunameðferð fyrir son þeirra geti bjargað honum.
Greint er frá þessu á vef Guardian.
Yfirréttur í Bretlandi tók málið fyrir í gær á ný eftir að foreldrarnir fóru fram á að gögn frá sjö læknum um að tilraunameðferðin gæti skilað árangri yrðu tekin fyrir. Í apríl komst sami réttur að því að foreldrarnir fengju ekki að fara með barnið úr landi og til meðferðar í Bandaríkjunum.
Dómarinn sagði við fyrirtöku málsins í gær að hann myndi glaður breyta um skoðun frá því í apríl, en það þyrfti mjög sterkar sannanir fyrir árangri meðferðarinnar svo hann myndi gera það. Foreldrarnir munu leggja fram gögnin á fimmtudag og mun dómarinn þá taka ákvörðun.
Fjallað hefur verið um mál Charlie Gard á öllum dómstigum í Bretlandi en í síðustu viku komst Mannréttindadómstóll Evrópu að þeirri niðurstöðu að læknum væri heimilt að taka hann úr öndunarvél. Drengsins biði ekkert nema þjáning og batahorfurnar væru engar.
Drengurinn þjáist af sjaldgæfum hrörnunarsjúkdómi en læknar segja að hann geti ekki séð, heyrt, hreyft sig, grátið eða kyngt. Hann er háður öndunarvél og hefur dvalið á gjörgæslu frá því í október.
Cannie Yates, móðir Gard, biðlaði til dómarans í gær að hlusta á sérfræðinga sem telja tilraunameðferð geta verið „kraftaverk“ fyrir son hennar.
Foreldrar Gard hafa barist fyrir því að fá að flytja drenginn til Bandaríkjanna í meðferð. Frans páfi hefur lýst yfir stuðningi við foreldra Gard og sagðist vonast til þess að læknar myndu sjá um drenginn þar til yfir lyki.