Foreldrar hins ellefu mánaða gamla Charlie Gard sem þjáist af banvænum hrörnunarsjúkdómi hafa gefist upp á því að ferðast til Bandaríkjanna vegna tilraunarmeðferðar.
BBC greinir frá því að foreldrar drengsins hafi gefist upp á meðferðinni eftir að bandarískur læknir sagði að það væri um seinan. Lögfræðingur þeirra Chris Gard og Connie Yates sagði að „tíminn hefði runnið út“.
Foreldrar Charlies mættu fyrir yfirrétt í Bretlandi í dag, þar sem til stóð að leggja fram vitnisburð frá bandarískum taugalækni sem heimsótti Charlie á Great Ormond Street-spítalann á dögunum. Niðurstaða læknisins var ljós á föstudag, en hann sagði að engin von væri fyrir drenginn. Ákváðu foreldrarnir því að draga til baka kröfur sínar, og leyfa syni sínum að deyja.
Sky News fylgdist með frá dómsalnum í beinni útsendingu. Þar sagði lögmaður foreldranna að í ljós hefði komið að meðferð myndi engum árangri skila.
Foreldrarnir hafa barist fyrir því að drengurinn fái að lifa, en vegna sjúkdóms hans getur hann ekki opnað augun, borðað eða hreyft sig svo neinu nemi sjálfur.
Læknar á spítalanum hafa farið fram á að taka öndunarvél sem heldur drengnum á lífi úr sambandi, og hafa dómarar á öllum dómstigum í Bretlandi og fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu verið sammála því.
„Þetta er það erfiðasta sem við höfum gert. Eftir nýjustu niðurstöður höfum við ákveðið að leyfa syni okkar að deyja,“ sagði Connie Yates, móðir drengsins, fyrir dómi í dag. Þá gagnrýndi hún ferlið síðustu mánuði og sagði miklum tíma hafa verið sóað. Ef hann hefði farið fyrr í meðferðina hefði hann átt möguleika.
„Við vitum í hjörtum okkar að við gerðum okkar besta fyrir Charlie og við vonum að hann sé stoltur af okkur,“ sagði Yates. „Mamma og pabbi elska þig svo mikið, Charlie, við höfum alltaf gert það og munum alltaf gera það.“
Charlie fæddist 4. ágúst í fyrra. Hann er með erfðasjúkdóm sem veldur óafturkræfum heilaskemmdum og því að vöðvar hans rýrna hratt. Foreldrarnir vildu fá að flytja hann til Bandaríkjanna til að gangast undir tilraunameðferð við sjúkdómnum. Öndunarvél hans verður nú tekin úr sambandi.