Fimm látnir á flugvellinum í Kabúl

Bandaríkjamenn standa vörð á flugvellinum.
Bandaríkjamenn standa vörð á flugvellinum. AFP

Að minnsta kosti þrír voru skotnir til bana í morgun á farþegasvæði á alþjóðaflugvellinum í Kabúl þar sem þúsundir Afgana freista þess að komast úr landi eftir yfirtöku Talíbana. Sjónarvottar sögðu frá því í samtali við Wall Street Journal að blóðug lík hafi legið á jörðinni rétt fyrir utan flugstöðvarbygginguna. 

Reuters segir að tala látinna sé komin upp í að minnsta kosti fimm. Fólkið hafi týnt lífi þegar hundruð reyndu að komast um borð í rýmingarflug. Sjónarvottur sagði í samtali við Reuters að fimm lík hafi verið borin frá flugvellinum.

Almennum flugferðum aflýst

Bandaríski herinn hefur tekið yfir öryggisgæslu á flugvellinum en hafði ekki brugðist við fréttum af dauðsföllunum þegar frétt WSJ var birt. Herinn vinnur að því að flytja erlenda diplómata og borgara úr landi. Rýmingarflugið er framkvæmt á sérstakri hernaðarhlið flugvallarins. 

Fregnir hafa borist af því að bandarískir hermenn hafi skotið viðvörunarskotum þegar þeir reyndu að hafa hemil á mannfjöldanum.

Öllum almennum farþegaflugferðum frá flugstöðinni var aflýst í morgun. Þúsundir hafa leitað að leið út úr landinu. 

Talíban­arn­ir tóku yfir for­seta­höll­ina eft­ir að for­seti lands­ins, Ashraf Ghani, flúði landið í gær.  Ótrú­lega fljótt fall rík­is­stjórn­ar­inn­ar vakti ótta og örvingl­un á meðal al­mennra borg­ara. Á ein­ung­is tíu dög­um hafa Talíban­ar náð að sölsa til sín svo til öll völd í Af­gan­ist­an.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert