Minntist ekki orði á flugslysið

Pútín ávarpaði BRICS-bandamenn sína í gegnum myndbandshlekk.
Pútín ávarpaði BRICS-bandamenn sína í gegnum myndbandshlekk. AFP

Forseti Rússlands, Vladimír Pútín, ávarpaði BRICS-löndin á leiðtogafundi bandalagsins í dag. Innganga sex ríkja í bandalagið var tilkynnt í dag, en Pútín minntist ekki orði á flugslysið sem var Jev­gení Prigó­sjín, leiðtoga Wagner-málaliðahóps­ins, að bana í gær.

Leiðtogar BRICS-ríkjanna eru samankomnir í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, en Pútín sendi kveðjur sínar og ávarp í gegnum myndbandshlekk. Í ávarpi sínu kvaðst Pútín þakklátur leiðtoga Suður-Afríku, Cyril Ramaphosa, fyrir að halda fundinn. 

Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á Pútín vegna meintra stríðsglæpa og kom því fáum á óvart að forsetinn skyldi halda sig heima, þrátt fyrir að Ramaphosa hafi gefið í skyn að hann myndi ekki fyrirskipa handtöku Pútíns.

Suður-Afr­íka viður­kenn­ir dóm­stól­inn og ætti því reglum samkvæmt að fylgja eftir handtökuskipuninni. Ramaphosa hefur hins vegar sagt að handtaka Pútíns á suður-afrískri grundu myndi jafngilda stríðsyfirlýsingu.

Pútín ásakaður

Vakti það athygli að forsetinn minntist ekki einu orði á flugslys gærdagsins sem varð Prigó­sjín og níu mönnum hans að bana. Upplýsingaveita Wagner-hópsins hefur sakað rússnesk stjórnvöld um að hafa skotið flugvélina niður og eru hernaðarsérfræðingar víða á sama máli. 

Prigó­sjín var eitt sinn bandamaður Rúss­lands­for­seta en fór fyr­ir mis­heppnaðri vald­a-ránstilraun gegn Pútín í júní og hef­ur andað köldu milli for­ingj­anna tveggja und­an­far­in miss­eri.

Sex lönd bætast í hópinn

Rússland ásamt Brasilíu, Indlandi, Kína og Suður-Afríku, mynda BRICS-bandalagið, en tilkynnt var á leiðtogafundinum að bandalagið hygðist taka inn sex lönd til viðbótar: Argentínu, Egyptaland, Eþíópíu, Íran, Sádí-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmin. 

Innganga landanna sex í bandalagið tekur gildi frá og með janúar 2024. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert