Hnúfubakar slá skjaldborg um hrefnuna

Hnúfubaki bregður fyrir við Dröfn á Steingrímsfirði í dag.
Hnúfubaki bregður fyrir við Dröfn á Steingrímsfirði í dag. mynd/strandir.is

Gríðarlega er mikið af hval á Steingrímsfirði þessa stundina og segir á fréttavefnum Strandir.is, að engu sé líkara en að hnúfubakurinn hafi ákveðið að slá skjaldborg um hrefnurnar á firðinum. Hrefnuveiðiskipið Dröfn lónar um fjörðinn í leit að hrefnu og allt í kringum skipið má sjá sporðakast fjölmargra hnúfubaka. Dröfn fékk fyrstu hrefnuna á vertíðinni á Steingrímsfirði í morgun.

Strandir.is segir, að undanfarnar vikur hafi verið mikið um hvali á Steingrímsfirði og lofar .það góðu fyrir verkefnið WOW! sem unnið hefur verið að undanfarið ár. Verkefnið gengur út á náttúruskoðun og hvalaskoðun úr landi.

Aðstandendum verkefnisins var nokkuð brugðið þegar fréttist af hrefnuveiðum á firðinum í morgun en héldu ró sinni þar sem Hafrannsóknastofnun vissi ekki um fyrirætlanirnar þeirra. Haft er eftir talsmanni Hafrannsóknastofnunar, að stofnunin reyni að forðast að veiða hvali á hvalaskoðunarsvæðum líkt og á Skjálfanda og öðrum ákveðnum svæðum við landið.

Strandir.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert