Rækjuvinnslu hætt hjá Miðfelli á Ísafirði
Miðfell. mynd/bb.is
Í tilkynningu frá Miðfelli segir, að vegna erfiðrar stöðu í rækjuiðnaði að undanförnu hafi verið ákveðið að stöðva vinnslu hjá Miðfelli ótímabundið frá og með deginum í dag. Staða á mörkuðum bæði hráefnis- og afurðamörkuðum og ekki síst staða krónunnar og styrking hennar að undanförnu, hafi neytt stjórnendur félagsins til að taka þessa ákvörðun. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um uppsagnir starfsfólks að svo stöddu.
Elías sagðist í samtali við bb.is ekki geta sagt fyrir um það hvort og þá hvenær vinnsla hefjist aftur hjá félaginu. „Það hafa verið erfiðleikar í rækjuvinnslu í langan tíma og nú er ekki hægt að halda áfram að óbreyttu miðað við þá stöðu sem fyrirtækið er komið í“, segir Elías. „Það sem af er þessu ári hefur verið mjög erfitt. Gengi krónunnar hefur styrkst verulega, sem er öllum útflutningi óhagstætt, en þar að auki hefur verið lítið framboð af hráefni, verð þess hátt og afurðaverð ekki hækkað í takt við væntingar.“
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir tíðindin alvarleg en komi þó ekki mjög á óvart. „Maður er búinn að eiga von á þessu í nokkurn tíma, en rækjuvinnslan hefur verið mjög á niðurleið að undanförnu og verksmiðjum hefur verið lokað um allt land. Við höfum fylgst með rekstri þessa fyrirtækis í langan tíma og höfum þurft að grípa nokkrum sinnum inn í“, segir Halldór.
Miðfell var stofnað árið 1999 og hefur rekið rækjuverksmiðju að Sindragötu 1 á Ísafirði. Stærstu hluthafar félagsins eru Byggðastofnun, Hömlur, Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. í Hnífsdal og Ísafjarðarbær sem gerðist hluthafi í félaginu árið 2004 þegar skuldum félagsins við bæinn var breytt í hlutafé.
Bloggað um fréttina
-
Úlfar Þór Birgisson Aspar Ég hef greinilega hætt á hárrettu augnabliki. -
Níels A. Ársælsson. Upphaf rækjuveiða á Íslandi
Innlent »
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 2. júlí 2007, Innlent Byggðastofnun kunnugt um langvarandi erfiðleika Miðfells
- Miðvikudagur, 23. maí 2007, Innlent Birtir til í rækjuiðnaði á Ísafirði
- Fimmtudagur, 28. júní 2007, Innlent Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Miðfells
- Miðvikudagur, 11. júlí 2007, Innlent Uppsagnir boðaðar í rækjuvinnslu Ramma
- Mánudagur, 30. júlí 2007, Innlent Bakkavík hættir vinnslu tímabundið
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































