Búið að opna Suðurlandsveg

Mikill hiti var í atvinnubílstjórum vegna afskipta lögreglu af aðgerðum …
Mikill hiti var í atvinnubílstjórum vegna afskipta lögreglu af aðgerðum þeirra í morgun mbl.is/Júlíus

Atvinnubílstjórar sem lokuðu Suðurlandsvegi í morgun hafa fjarlægt bíla sína af veginum og er lögregla nú að opna fyrir umferð. Hópur atvinnubílstjóra er þó enn á staðnum og er mikill hiti í þeim.

Samkvæmt  heimildum blaðamanns mbl.is sem er á staðnum var einn maður færður inn í lögreglubíl en enginn handtekinn. Þá lá við slagsmálum er bílstjórar kröfðu lögreglumenn um ökuskírteini og önnur skilríki sem þeir höfðu tekið af þeim. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert