Norrænir ráðherrar ræða stöðuna

Geir Haarde forsætisráðherra.
Geir Haarde forsætisráðherra. mbl.is/RAX

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hefur í dag hafa rætt við ýmsa evrópska ráðamenn um stöðu mála. Ákveðið hefur verið að halda sérstakan fund norrænna forsætisráðherra um fjármálakreppuna í Helsinki í lok október. 

Geir sagðist í dag hafa rætt við José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins,  Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra NATO, Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, og norræna forsætisráðherra.

Geir sagði, að komið hefði verið á framfæri athugasemdum Íslendinga í NATO-ráðinu um að Bretar hefðu beitt hryðjuverkalögum gegn Íslendingum. Sagðist Geir hafa rætt þetta við de Hoop Scheffer.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert