Sjóræningjafáni við Landsbankann á Akureyri

mbl.is/Margrét Þóra

Í morgun blakti sjóræningjafáni við hún við útibú Landsbankans á Akureyri. Honum hefur að líkindum verið komið fyrir í skjóli nætur og tók lögregla fánann niður nú á tólfta tímanum. Myndirnar náðust í morgun, skömmu áður en lögreglu bar að garði, en brösuglega gekk að ná fánanum niður og veitti ökumaður sem átti leið um lögreglu aðstoð.

mbl.is/Margrét Þóra
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert