Skrifað undir samning við Færeyjar

Árni M. Mathiesen og Jóannes Eidesgaard handsala samkomulagið.
Árni M. Mathiesen og Jóannes Eidesgaard handsala samkomulagið.

Jóannes Eidesgaard, fjármálaráðherra Færeyja, og Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra Íslands, skrifuðu í dag undir bráðabirgða lánssamning milli færeysku landsstjórninnar og íslensku ríkisstjórnarinnar.

Samið er um að fyrstu fimm árin árin verði ekki greitt af höfuðstól lánsins heldur aðeins vextir og verður samið síðar um hvernig lánið verður endurgreitt. Vextir af láninu verða ákveðnir 1. desember ár hvert og verða þeir sömu, og landsstjórn Færeyja greiðir af sínum lánum.

„Þetta er nýtt og ánægjulegt hlutverk fyrir Færeyjar. Það er ánægjulegt að vera fjármálaráðherra Færeyja og geta rétt fram hjálparhönd. Þekki einhver  hvað það þýðir fyrir land að vera í kreppu, þá erum það við. Það eru aðeins 16 ár síðan við vorum sjálf í erfiðri kreppu," segir Jóannes Eidesgaard í tilkynningu. 

Árni bað Jóannes fyrir hlýjar kveðjur til Færeyinga fyrir þann vinarhug sem þeir sýna Íslendingum með lánveitingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert