Dæmdur fyrir að stela vodkaflösku

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela vodkaflösku úr vínbúð í Hafnarfirði. Fram kemur í dómnum, að maðurinn hefur áður verið sektaður fyrir þjófnað.

Flaskan kostaði 3250 krónur og féllst maðurinn á að bæta ÁTVR tjónið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert