Norðfjarðargöng rædd á fundi ráðherra

Frá fundi samgönguráðherra í Neskaupstað í gær
Frá fundi samgönguráðherra í Neskaupstað í gær

Vel á annað hundrað manns sótti borgarafund Kristjáns L. Möller samgönguráðherra á Neskaupstað í gær. Ráðherrann fjallaði um samgöngumál á Austurlandi og sérstaklega Norðfjarðargöng og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri greindi frá undirbúningi verksins.

Samgönguráðherra greindi í upphafi máls síns frá helstu framkvæmdum ársins á Norðausturlandi en þær stærstu eru endurbygging Vopnafjarðarleiðar og Hólaheiðar á Melrakkasléttu. Sagði hann tilboð í síðari áfanga Vopnafjarðarleiðar verða opnuð í næstu viku og jafnframt verður auglýst útboð í Raufarhafnarleið, nýja tengingu milli vegarins um Hólaheiði og Raufarhafnar. Þá er unnið að endurnýjun vegar um Hólmaháls sem mun ljúka síðla árs.

Fram kom í máli samgönguráðherra og vegamálastjóra að unnið hefur verið að undirbúningi Norðfjarðarganga síðustu misserin. Sögðu þeir leiðarval liggja fyrir, von væri á áliti Skipulagsstofnunar um matsskýrslu í lok næsta mánaðar og unnið væri að verkhönnun vega, brúa og ganga og hafinn væri undirbúningur að hönnun vegskála og raflagna.

Samgönguráðherra sagði efnahagsvandann tefja upphaf verksins sem hann sagði óljóst en undirbúningur miðaðist við að verkið yrði tilbúið til útboðs um leið og aðstæður í fjármálum bötnuðu, að því er fram kemur á vef samgönguráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert