Allsherjarnefnd ræðir fangelsismál
Skortur er á fangarýmum í landinu. Ljóst er að Litla-hraun og fleiri fangelsi anna ekki eftirspurninni. mbl.is/Brynjar Gauti
„Ég er mjög ánægð með að orðið hafi verið við þeirri ósk minni að halda fund,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, en allsherjarnefnd kemur saman kl. 09 til þess að ræða stöðu fangelsismála.
Að sögn Vigdísar á nefndin von á tæpum tug gesta, en um sé að ræða þungavigtarfólk í fangelsismálabransanum. Þeirra á meðal eru Páll Winkel fangelsismálastjóri, Margrét Frímannsdóttir forstöðumaður fangelsisins Litla-Hrauns, tveir fulltrúar fangavarðafélagsins og tveir til þrír fulltrúar dómsmálaráðuneytisins.
Í samtali við mbl.is segist Vigdís hafa miklar áhyggjur af stöðunni í fangelsismálum þar sem biðlistar séu orðnir óheyrilega langir sem verði að taka á. Bendir hún á að biðtími eftir afplánun sé allt að fjögur til fimm ár. „Ég tel að það sé mannréttindabrot að fólk fái ekki að afplána sem fyrst eftir að dómur fellur.“
Aðspurð segist Vigdís fagna því að ríkisstjórnin hafi þegar brugðist við framkominni gagnrýni og auglýst eftir húsnæði til leigu undir fangelsi tímabundið. „Þetta sýnir að það þarf ekki alltaf að karpa um hlutina til að koma málum á hreyfingu. Málið er þess eðlis að stjórn og stjórnarandstaða þurfa að taka höndum saman og leysa úr hlutunum. Og mér sýnist það vera að takast,“ segir Vigdís.
Að sögn Vigdísar mun kostnaðurinn við fjölgun fangelsisrýma vera á bilinu 120-130 milljónir króna á ári. Spurð hvort ríkið hafi efni á því segir Vigdís svo verða að vera. „Annað hvort verðum við að taka ákvörðun um að leggja hér niður réttarríkið eða halda því lifandi. Einn liður í því að viðhalda réttarríki er að hér gildi lög og reglur sem löggjafinn hefur sett og þá verður refsihliðin á brotum líka að vera virk, þ.e.a.s. ef fólk tekur upp á því að brjóta lögin. Það er grundvallaratriði í réttaríki að þeir sem eru dæmdir fái að afplána auk þess sem við verðum að vernda borgarana fyrir aðilum sem eru samfélaginu hættulegir. Annars getum við bara gleymt því að rífa hér allt upp eftir hrunið,“ segir Vigdís.
Bloggað um fréttina
-
Baldvin Björgvinsson Eitt stórt fangelsi -
Friðrik Hansen Guðmundsson Atvinnulausir smiðir byggi fangelsi
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. október 2009, Innlent Tifandi tímasprengja í fangelsunum
- Laugardagur, 13. desember 2008, Innlent Bagalegt að fresta nýbyggingu á Litla-Hrauni
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 14. nóvember 2009, Innlent Vigdís sér eftir því að hafa ekki hætt 1992
- Mánudagur, 15. desember 2008, Innlent Fangelsinu á Akureyri lokað hluta ársins
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá





































