Ákvörðun leiðtoga ESB veigamikið skref

Jóhanna Sigurðardóttir er formaður Samfylkingarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir er formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Ómar

Samfylkingin fagnar ákvörðun leiðtoga Evrópusambandsríkjanna um að hefja aðildarviðræður við Ísland. Flokkurinn segir í tilkynningu að ákvörðunin sé veigamikið skref í því ferli sem hafi hafist þegar Alþingi hafi samþykkt með lýðræðislegum hætti umsókn Íslands fyrir tæpu ári síðan.

Íslenska þjóðin geti einungis tekið upplýsta ákvörðun um hvort aðild þjóni hagsmunum Íslendinga þegar samningur liggi fyrir. Mikilvægt sé að áfram verði vel staðið að samningaferlinu og að þjóðin standi saman og styðji við bakið á samningafólkinu, til að sem bestur samningur náist. Þannig sé hagsmunum Íslands best þjónað.

„Samfylkingin styður aðild Íslands að Evrópusambandinu. Aðild er mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands eftir efnahagshrunið og markmiðið er langtímastöðugleiki í efnahagsmálum og öflugt samstarf á jafningjagrunni við nánustu nágrannaþjóðir.

Ákvörðun Evrópusambandsins um að hefja viðræður við Ísland var tekin á þjóðhátíðardegi okkar 17. júní, en með aðild að Evrópusambandinu verður enn frekar unnt að standa vörð um fullveldi Íslands á alþjóðavettvangi og treysta sjálfstæði þjóðarinnar. Ísland mun sem fullgild aðildarþjóð, sitja við sama borð og önnur aðildarríki, þar sem ákvarðanir eru teknar um sameiginlega hagsmuni allra Evrópusambandsríkja,“ segir í tilkynningu frá framkvæmdastjórn flokksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert