Erlendir ökumenn að flýta sér

mbl.is/Júlíus

Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði 6 bifreiðar fyrir of hraðan akstur í gær, við hefðbundið umferðareftirlit.

Þannig vildi þó til í gær að í öllum tilvikum var um að ræða erlenda ferðamenn á bílaleigubílum.

Sá sem hraðast ók var tekinn á 127 kílómetra hraða skammt frá Kirkjubæjarklaustri.

Allir ökumenn greiddu hraðasektirnar strax og hljóðuðu þær alls upp á 225 þúsund krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert