Fengu ekki fundarboð

Steingrímur J. Sigfússon, Jóhanna Sigurðardóttir og Árni Páll Árnason eftir …
Steingrímur J. Sigfússon, Jóhanna Sigurðardóttir og Árni Páll Árnason eftir ríkisstjórnarfund í gær. mbl.is/Jón Pétur

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna segjast ekki hafa fengið boð á fund með Jóhönnu Sigurðardóttur og ráðherranefnd hennar en í Fréttablaðinu í dag kemur fram að Jóhanna hafi boðað þau til fundar klukkan níu í morgun. „Ég veit ekki hvort þau mæta, það verður að koma í ljós,“ segir Jóhanna í samtali við Fréttablaðið.

Ólöf Nordal segist hafa frétt af fundinum við blaðalestur með morgunkaffinu. „Ég var ekki boðuð á neinn fund. Ég veit ekki einu sinni hvar fundurinn er.“

Ólöf segir sjálfstæðismenn þó alltaf vera reiðubúna til að vinna að góðum málum. „Við verðum samt að hafa einhverja hugmynd um það hvað ríkisstjórnin sér fyrir sér. Á meðan ríkisstjórnin vill ekki taka á málunum í heild og setja þau í samhengi við þjóðfélagið í dag, þá er mjög erfitt við hana að tala.“

„Það er ekkert hægt að ætlast til þess að menn mæti bara á einhverja fundi sem þeir eru ekki boðaðir á og vita ekkert hvar eru,“ segir Ólöf sem kveður Jóhönnu hafa rætt það á fundi með stjórnarandstöðunni í gær að einhverjir ráðherrar ætluðu að hittast í dag.

„Við sögðum að það væri forgangsatriði að fá að vita hvað ríkisstjórnin hyggst gera, hvernig allt saman verður gert. Fyrr getur stjórnarandstaðan ekki komið að málum,“ segir Ólöf og bætir við: „Ég las það bara í Fréttablaðinu í dag að við höfum verið boðuð á einhvern fund og óvíst sé hvort við mætum. Ég hef ekki fengið boð á neinn fund og veit ekki einu sinni hvar hann er. Ef það á að boða mann á fundi með formlegum hætti þá er ágætt að fá að vita af því áður en maður vaknar, gott að vita líka hvert maður á að fara og hvað á að gera.“

Þór Saari tekur í sama streng og kveðst hafa frétt af fundinum við blaðalestur. „Fréttablaðið er bara samt við sig oft. Það var lauslega rætt á þessum fundi með Jóhönnu og Steingrími í gær hvort ástæða væri til að funda aftur í dag og við einfaldlega töldum svo ekki vera. Þau voru ekki með neinar nýjar tillögur í þessum vanda heimila og virtust ekki vera tilbúin að breyta því. Það var ekki boðað til neins fundar,“ segir Þór sem kveðst ekki einu sinni hafa mætt á fundinn þó hann hefði fengið formlegt boð.

  „Það er voða gaman að hitta þetta fólk og drekka með því kaffi en það er bara tímasóun þegar svona er. Í gær lögðu þau fram blað sem á stóð stýrirhópur eitt, stýrirhópur tvö, undirhópur A, undirhópur B o.s.frv. Þetta var bara alger þvæla og pólitísk sýndarmennska.“

Ekki náðist í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert