Vilja eftirlitsnefnd fyrir þingnefnd

Höfuðstöðvar Landsbankans.
Höfuðstöðvar Landsbankans. Árni Sæberg

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd Alþingis hafa farið fram á að fulltrúar eftirlitsnefndar efnahags- og viðskiptaráðherra og fulltrúar Landsbankans komi fyrir viðskiptanefnd vegna ummæla forstjóra Landsbankans í viðtalsþættinum Návígi á RÚV í síðustu viku. Þar kemur fram að forstjórinn telur að eftirlistnefndin hafi samþykkt ýmsar afgreiðslur bankans sem að hafa verið í umræðunni.

Vísa þingmennirnir einkum til svara Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, við spurningum Þórhalls Gunnarssonar um málefni félagsins Stíms. Spurning Þórhalls var þessi: „Jakob Valgeir, afskriftir hans og lán sem hann fær að ábyrgjast upp á einn milljarð. Hann eignast eftir kennitöluflakk eignir útgerðarfyrirtækisins Festi sem var sett í þrot af hálfu Landsbankans.“

Steinþór Pálsson svaraði: „Ég skal bara benda á eitt – við erum með eftirlitsnefnd frá Alþingi inni hjá okkur sem er að yfirfara hvernig við stöndum að málum. Þeir eru að skoða mál alveg niður í smæstu smáatriði. Og þeir segja, ... og þeir gefa okkur góða umsögn... að jafnræðis sé gætt."

Einnig spurði Þórhallur um málefni Skinneyjar-Þinganess og fyrirgreiðslu sem útgerðarfyrirtækið fékk hjá Landsbankanum. Spurði Þórhallur hvað réði því að sumir fengju meiri fyrirgreiðslu en aðrir væru keyrðir í þrot. Svar Steinþórs var eftirfarandi: „Þetta er í grunninn mjög einfalt, við erum með reglur sem við vinnum eftir, við erum með eftirlitsnefnd frá Alþingi sem er að yfirfara hvort við erum að fylgja þessum reglum. Þeirra niðurstaða er sú að jafnræðis sé gætt."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert