Búfræðimenntun metin til launa

Menntun er metin til launa í nýjum kjarasamningi landbúnaðarverkamanna.
Menntun er metin til launa í nýjum kjarasamningi landbúnaðarverkamanna. mbl.is/Þorkell

Gengið hefur verið frá nýjum kjarasamningi fyrir landbúnaðarverkamenn. Menntun á háskólastigi verður metin til launahækkunar.

Starfsgreinasambandið og Framsýn stéttarfélag í Þingeyjarsýslum sömdu um kjör landbúnaðarverkamanna við Bændasamtök Íslands. Skrifað var undir nýjan samning hjá ríkissáttasemjara í dag.

Fram kemur á vef Framsýnar að samningurinn gildir til ársins 2014 og er að efni til í samræmi við aðra kjarasamninga sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði að undanförnu. Samningurinn felur í sér það nýmæli að menntun á háskólastigi á sviði búfræði, fiskeldisfræði og tamninga verður metin til launahækkunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert