Oddný styður Guðbjart

Oddný Harðardóttir
Oddný Harðardóttir mbl.is/Ómar Óskarsson

Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, styður Guðbjart Hannesson, velferðarráðherra í embætti formanns flokksins. Þetta kom fram í Silfri Egils í dag.

Í gær greindi Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður, frá því í útvarpsþættinum Vikulokin, að hún styddi Guðbjart. Auk Guðbjarts hefur Árni Páll Árnason þingmaður tilkynnt að hann bjóði sig fram í embætti formanns Samfylkingarinnar er Jóhanna Sigurðardóttir lætur af embættinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert