Bleikar götur í skjóli myrkurs

Hópur kvenna vopnaður málningarkústum framdi í kvöld gjörning á umferðarmannvirkinu þar sem Bústaðavegur og Hringbraut mætast. Þær máluðu malbikið fagurbleikt. Gjörningurinn er hluti af Bleikum október og framinn með leyfi lögreglu, og raunar var Stefán Eiríksson lögreglustjóri sjálfur á staðnum.

Bleikur október er árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins og hófst í gær og stendur allan október, m.a. með sölu á Bleiku slaufunni.

Umferðarslaufan við Hringbraut verður bleik allan mánuðinn af þessu tilefni. Það voru um 20 vaskar konur sem máluðu götuna í sjálfboðaliðastarfi fyrir Krabbameinsfélagið í kvöld. Þær koma úr meistaraflokki Vals í körfubolta og slysavarnardeildinni Vörðunni á Seltjarnarnesi.

Vörðukonur voru einkar ánægðar með að hitta fyrir Stefán Eiríksson lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins á vettvangi málningarvinnunnar og stilltu sér upp á mynd með honum, enda gerðist hann nýverið Seltirningur sjálfur.

Aðspurður hvort eins fari fyrir þessari framkvæmd eins og regnbogagangbrautinni í Laugardalnum, sem var fjarlægð í tvígang, sagði Stefán enga hættu á því þar sem bleika málningin sé í samræmi við lögreglusamþykkt.

Bleikur október að hefjast

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert