Eygló fer ekki til Sotsjí

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Eggert

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, fer ekki á Ólympíuleika fatlaðra í Sotsjí eins og áætlað var. Í tilkynningu á vef velferðarráðuneytisins segir að vegna þróunar mála í Úkraínu síðustu daga sé það mat ráðherra, í samráði við ráðuneytið, að það sé ekki rétt að hún heimsæki Rússland. 

Tilkynningin sem Eygló sendi frá sér:

„Íslensku keppendurnir á Ólympíumóti fatlaðra komu til Sotsjí í nótt ásamt þjálfurum sínum en keppnisdagar þeirra eru 13. og 16. mars. Hugur minn er hjá þessu öfluga og efnilega íþróttafólki sem hefur lagt svo mikið á sig vegna mótsins um langt skeið. Við Íslendingar getum verið stolt af þeim.

Ég hlakkaði mikið til að vera viðstödd keppnina í Sotsjí til að fylgjast með og sýna íslensku keppendunum stuðning og verðskuldaða virðingu. Á mótinu keppa þátttakendur sín á milli í anda friðar, án tillits til litarháttar, trúarbragða eða stjórnmálaskoðana og ákvörðun mín á sínum tíma um að fara til Sotsjí byggðist á þeim anda mótsins. 

Vegna þróunar mála í Úkraínu síðustu daga er það hins vegar mat mitt, að höfðu samráði við utanríkisráðuneytið, að það sé ekki rétt að ég heimsæki Rússland á þessum tíma. Ég fundaði með Ólafi Magnússyni, framkvæmdastjóra Íþróttasambands fatlaðra, í dag til að segja honum frá þessari ákvörðun og biðja hann fyrir kveðjur mínar til íslensku keppendanna; Ernu Friðriksdóttur og Jóhanns Þórs Hólmgrímssonar. Ég veit að þau verða okkur öllum til sóma.“

Eygló Harðardóttir,
félags- og húsnæðismálaráðherra og norrænn samstarfsráðherra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert