„70-80% heimila í góðum málum“

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfsstæðisflokks, segir að langflest heimili geti vel greitt af húsnæðislánum sínum. Ráðstöfunartekjur þeirra sem hafi tekið lán fyrr en í desember 2004 hafi jafnframt aukist umfram hækkun á lánunum auk þess sem virði eigna þeirra hafi aukist meira en lánin, því geti hann ekki stutt leiðréttingarúrræði ríkisstjórnarinnar.

mbl.is ræddi við Pétur í dag en hann skilaði í gær inn séráliti um frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar til laga um leiðrétt­ingu verðtryggðra fast­eigna­veðlána.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert