Sleppt en sæta farbanni

Tveimur karlmönnum, sem setið höfðu í gæsluvarðhaldi á Akureyri vegna gruns um líkamsárás á Hvammstanga um síðustu helgi, voru látnir lausir í gærkvöldi að loknum yfirheyrslum. Þeir sæta hins vegar farbanni.

Maðurinn sem varð fyrir árásinni lést vegna áverka sem hann hlaut. Ekki er ljóst hvernig hann hlaut þá en talið er hugsanlegt að slys hafi valdið því. Mennirnir tveir, sem eru feðgar og búsettir í húsinu þar sem atburðurinn átti sér stað, hafa neitað sök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert