Þrír karlar voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 13. október í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli.
Eins og fram hefur komið var lagt hald á mikið magn fíkniefna, en efnin voru falin í bifreið sem kom til landsins með Norrænu í síðasta mánuði.
Einn til viðbótar situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar, en fjórmenningarnir, tveir Íslendingar og tveir Hollendingar, eru á þrítugs- og fertugsaldri.
Tugir kílóa af sterkum fíkniefnum