Seðlabankinn „dottinn herfilega í það“

Þorsteinn Sæmundsson alþingismaður.
Þorsteinn Sæmundsson alþingismaður. mbl.is/Styrmir Kári

„Seðlabankastjóri hefur sagt að innflæði fjármagns sé svolítið eins og áfengisáhrif, það sé mjög gott í hófi, en mér sýnist Seðlabankinn vera dottinn herfilega í það og ég held að hann sé kominn á ofboðslegt vaxtamunarfyllirí,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag undir dagskrárliðnum störf þingsins.

„Eitt af því sem einkenndi fjármálakerfið á Íslandi fyrir hrun var að þá var í gangi hávaxtastefna líkt og nú og inn streymdi erlent áhættufé. Nú er svo að í næsta mánuði stendur til að Seðlabankinn bjóði upp 200 milljarða af slíku fé til að losa um svokallaða snjóhengju. Maður hefði ætlað það að þessir atburðir, þ.e. það sem gerðist hér í aðdraganda hrunsins og nauðsynlegar ráðstafanir vegna þess núna, hefðu kennt Seðlabankanum eitthvað,“ sagði þingmaðurinn.

Frétt mbl.is: Fjárfest fyrir 76 milljarða

Hins vegar hafi komið fram í svari Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini um innflæði gjaldeyris í fyrra að hingað hafi streymt fjármagn til kaupa á ríkisskuldabréfum upp á 54 milljarða króna. Nú ætti að fara að losa um 200 milljarða króna. 

„Í svarinu segir einnig að þetta innflæði einskorðist við fé sem kemur inn í landið eftir svokallaðri nýfjárfestingarleið Seðlabankans. Þetta þýðir að Seðlabankinn er að bjóða áhættufjárfestum aftur ekki einungis að koma hér í vaxtahimin heldur fá þeir 20% fleiri krónur fyrir þann gjaldeyri sem þeir koma hér með inn.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert