Voru í sjónum í um 90 mínútur

Landhelgisgæslan sendi tvær þyrlur til þess að sækja mennina.
Landhelgisgæslan sendi tvær þyrlur til þess að sækja mennina. mbl.is/Eggert

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi hefur í dag unnið að rannsókn kajaksslyssins sem varð við við Þjórsárós á laugardag. Þar fóru tveir menn á kajökum frá bökkum Þjórsár nokkuð ofan við ósinn og reru að ósinum þar sem þeir komu að landi á vesturbakka árinnar. 

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni, að mennirnir hafi farið út aftur en lentu þá í broti í ósmunnanum með þeim afleiðingum að kajökunum hvolfdi og mennirnir misstu af þeim. Kajakana rak að landi austan við ósinn en mennina rak frá landi um tvo kílómetra þar sem áhafnir þyrlna Landhelgisgæslunnar sáu til þeirra og hífðu upp úr sjónum.

Mennirnir höfðu þá verið í sjónum í um eina og hálfa klukkustund. Kajakræðararnir voru þarna á eigin vegum í tómstundaiðkun. Annar mannanna lést í slysinu. Hann var íslenskur en félagi hans er franskur. 

Nafn þess látna verður ekki gefið upp að svo komnu að beiðni aðstandenda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert