Þyrlurnar halda uppi loftbrú

Þorleifur Olsen, starfsmaður Vegagerðarinnar, flytur skilti um borð í þyrlu …
Þorleifur Olsen, starfsmaður Vegagerðarinnar, flytur skilti um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Sigurður Bogi

Þyrlur Landhelgisgæslunnar halda nú uppi eins konar loftbrú frá Hornafirði til byggða í Suðursveit og á Mýrum. Það er í raun eina færa leiðin til þess að halda uppi samgöngum við þetta svæði. Nú í hádeginu voru vegagerðarmenn að bera ýmsan varning um borð í þyrluna TF-GNA, svo sem viðvörunarskilti sem komið verður fyrir á lokunarpóstum.

Einnig er fólk sem býr á svæðinu milli ófærra fljóta flutt til síns heima með þyrlum.

Tvær af þremur þyrlum landhelgisgæslunnar og báðar þær sem eru á landinu eru nú gerðar út frá Hornafirði en sú þriðja er í leiguverkefni erlendis.

„Ég geri ráð fyrir því að við verðum hér talsvert mikið næstu daga,“ segir Björn Brekkan þyrluflugstjóri í samtali við mbl.is. Hann segir flugið austur í morgun hafa sloppið til þrátt fyrir að á Hornafirði sé þungskýjað, nokkuð hvasst og gangi á með skúrum.

Björn Brekkan þyrluflugstjóri.
Björn Brekkan þyrluflugstjóri. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert