Taka ákvörðun síðar í dag

Frá leitinni á aðfangadag.
Frá leitinni á aðfangadag. Mbl.is/Jónas Erlendsson

Lögregla og svæðisstjórn björgunarsveita munu taka ákvörðun seinni partinn í dag varðandi áframhaldandi leit að Rima Grunskyté Feliksasdóttur.

Þetta kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar á Suðurlandi. Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, greindi frá því í morgun að ekki yrði leitað að konunni í dag vegna slæmra veðurskilyrða. 

Rima er talin hafa fallið í sjóinn við Dyrhólaey. Ekkert hefur spurst til hennar síðan á föstudagskvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert