Ill meðferð á hundum kærð til lögreglu

Matvælastofnun.
Matvælastofnun. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Matvælastofnun hefur kært meinta illa meðferð á hundum á höfuðborgarsvæðinu til lögreglu. Við skoðun dýralækna komu í ljós áverkar og bólgur í kynfærum annars hundsins.

Hundarnir tveir voru fjarlægðir af heimilinu og eru í umsjá lögreglu meðan á rannsókn stendur, að því er kemur fram í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert