Strokufanginn kominn á Hólmsheiði

Fangelsið á Hólmsheiði.
Fangelsið á Hólmsheiði.

Strokufanginn, sem var handtekinn undir morgun, hefur verið færður í afplánun í fangelsið á Hólmsheiði. Maðurinn var handtekinn í sumarbústað á höfuðborgarsvæðinu, en fimm aðrir voru jafnframt handteknir í tengslum við leitina.

Frá þessu greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í tilkynningu.

Fimmmenningarnir voru allir færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu, en eru nú lausir úr haldi lögreglu. Rannsókn á meintum þætti þeirra beinist að því hvort brotamanni hafi verið veitt aðstoð við að losna undan handtöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert