Dómstóll í Bretlandi úrskurðaði í dag að hinn ellefu mánaða gamli Charlie Gard, sem þjáist af banvænum hrörnunarsjúkdómi, verði fluttur á líknardeild og að öndunarvél hans verði tekin úr sambandi skömmu síðar.
Í yfirlýsingu frá Great Ormond Street-barnaspítalanum sagði að það væri Charlie ekki fyrir bestu að dvelja lengi á líknardeildinni.
Foreldrar Charlies höfðu óskað eftir fá aðstoð teymis hjúkrunarfólks til að annast hann svo þau gætu fengið lengri tíma með honum. „Þeir hafa synjað okkur um lokaóskina,“ sagði Connie Yates, móðir Charlies, í samtali við BBC. Fyrir vikið fái þau mjög skamman tíma með syni sínum.
Í Yfirlýsingu frá spítalanum sagði að þeim þætti verulega leitt að hinn djúpstæði skoðanamunur milli lækna Charlies og foreldra hans hefði verið dreginn á langinn fyrir dómstólum.
Charlie hefur verið viðfangsefni biturrar lagadeilu undanfarna mánuði, sem lauk í fyrradag er foreldrar hans drógu til baka kröfur sínar um að fá að ferðast með drenginn til Bandaríkjanna til tilraunameðferðar. Þau féllust í kjölfarið á að leyfa honum að deyja, en óskuðu eftir að geta eytt síðustu dögunum með honum heima áður en hann verður tekinn úr öndunarvélinni.
Málið hefur vakið mikla athygli og heitar deilur um það hverjir hafi valdið til að ákveða örlög barns.