Gengu út þegar Seinfeld var kynntur á svið

Seinfeld hélt ræðu er hann hlaut heiðursdoktorsnafnbót við skólann.
Seinfeld hélt ræðu er hann hlaut heiðursdoktorsnafnbót við skólann. AFP/Angela Weiss

Tugir útskriftarnemenda gengu út af útskriftarathöfn Duke-háskólans í Bandaríkjunum í dag þegar grínistinn Jerry Seinfeld, sem hefur opinberlega lýst yfir stuðningi sínum við Ísrael vegna stríðs þeirra á Gasa, hélt ávarp fyrir nemendurna.

Seinfeld hélt ræðu er hann hlaut heiðursdoktorsnafnbót við skólann. Nokkur fjöldi útskriftarnema yfirgaf leikvanginn, þar sem athöfnin var haldin, í upphafi ræðu grínistans.

Nemendur báru með sér palestínskan fána er þeir gengu frá útskriftarathöfn sinni, en áætlað var að 6.900 nemendur myndu útskrifast í dag frá skólanum.

Á síðustu vikum hafa fleiri en 2.000 manns verið handtekin í mótmælum gegn innrás Ísraels í Palestínu, við háskóla í Bandaríkjunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert