Sprengjulaga hlutur fannst í húsgrunni

Búið er að loka svæði kringum húsgrunninn.
Búið er að loka svæði kringum húsgrunninn. mbl.is/Árni Sæberg

Lögregla hefur lokað Furugrund í Kópavogi í aðra áttina og afgirt byggingasvæði þar sem byggja á íþróttahús og félagaaðstöðu HK eftir að túbulaga stykki sem virðist vera sprengja, fannst í grunninum. Þá hefur hluti Snælandsskóla verið rýmdur.

Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, er á staðnum en segir frekari upplýsingar ekki  liggja fyrir.  Fimm lögreglumenn standi vörð um byggingasvæðið en auk þess hafi tveir sérfræðingar Landhelgisgæslunar farið inn á það fyrir stundu. Þá segir hann forvitin börn og aðra íbúa hafa safnast að til að kanna hvað sé á seyði. 

Samkvæmt upplýsingum lögreglu er hluturinn sem um ræðir um 60 cm að lengd og um 20 cm að breidd. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert