Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kæru Aldísar Hilmarsdóttur, fyrrverandi yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fór hún fram á ógildingu á tilfærslu í starfi og bætur vegna þess og eineltis sem hún taldi sig hafa orðið fyrir af hálfu lögreglustjóra.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri ákvað að færa Aldísi til í starfi og taldi Aldís að það hafi verið stjórnvaldsákvörðun sem byggði á ómálefnalegum forsendum og í raun verið illa dulbúin og fyrirvaralaus brottvikning úr starfi. Þá sakaði hún Sigríði um einelti. Fór Aldís fram á 2,3 milljónir í bætur og ógildingu á ákvörðuninni.
Sigríður hefur sagt að deildin hafi verið óstarfhæf undir stjórn Aldísar en því hafnaði Aldís við aðalmeðferð málsins. Hún hafi komið inn í erfiðar aðstæður í deildinni og undir hafi kraumað miklir erfiðleikar og hiti, meðal annars vegna meintra spillingarmála tveggja lögreglufulltrúa við deildina.
Annar þeirra, Jens Gunnarsson, var síðar dæmdur fyrir misferli í starfi en hinn var hreinsaður af ásökunum að lokinni rannsókn. Sá hafði átt í nánu samstarfi við Aldísi innan deildarinnar en sjálf hafði Aldís enga aðkomu að meintum spillingarmálum og hefur ekki verið grunuð um slíkt. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði við aðalmeðferð málsins að hins vegar hafi til staðið að rannsaka meinta hylmingu af hálfu Aldísar í tengslum við þessi spillingarmál.
Sigríður sagði fyrir dómi að fjöldi kvartana hefði komið frá undirmönnum Aldísar um frammistöðu hennar sem yfirmanns. Hafi nokkrir lögreglufulltrúar hótað henni vantrausti en Sigríður hlíft henni við slíku. Þá sagði hún Aldísi hafa verið í algjörri afneitun gagnvart ástandinu í deildinni eftir að ásakanir um spillingu komu upp.
Bæði Friðrik og Jón H.B. Snorrason, fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn, sögðu við aðalmeðferðina að Aldís hefði verið mikill yfirburðastarfsmaður. Aðrir lögreglufulltrúar innan deildarinnar, sem gáfu skýrslu fyrir dómi og tilheyrðu „annarri klíku“ en Aldís ku hafa tilheyrt, voru á öðru máli og sögðu hana hafa skort hæfni í mannlegum samskiptum.
Endurflytja þurfi mál Aldísar í héraðsdómi þar sem dómur var ekki kveðinn upp í málinu innan átta vikna eftir að aðalmeðferð lauk. Var það gert um síðustu mánaðamót.