Jafnt í einvíginu eftir stórsigur

Tyrese Haliburton skoraði 20 stig í kvöld.
Tyrese Haliburton skoraði 20 stig í kvöld. APF/Dylan Buell

Indiana Pacers jafnaði einvígi sitt gegn New York Knicks í 2:2 í undanúrslitum Austurdeildar NBA-körfuboltans með sigri á heimavelli í kvöld, 121:89.

Indiana vann fyrsta leikhluta 34:14 og annan leikhluta 35:27. Var New York aldrei líklegt til að jafna í seinni hálfleik.

Tyrese Haliburton skoraði 20 stig í afar jöfnu liði Indiana, en sex leikmenn skoruðu tíu stig eða meira fyrir heimamenn. Alec Burks skoraði 20 fyrir New York.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert