Auglýsingastofan Pipar/TBWA ætlar ekki að fara lengra með kæru sína vegna ákvörðunar Ríkiskaupa um að ganga að tilboði bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í verkefninu „Ísland – saman í sókn“. Þetta segir Guðmundur Hrafn Pálsson, framkvæmdastjóri Pipars/TBWA. Kærunni var hafnað af kærunefnd útboðsmála.
„Þetta kemur ekkert á óvart en við vissum líka að það skipti miklu máli að klára þetta snemma og koma þessu í gang, hugsa um almannaheill í þessu og koma þessu verkefni af stað. Við vonum bara að Saatchi standi sig vel í því að koma útlendingum aftur til Íslands,“ segir Guðmundur.
Nú bíður Pipar/TBWA einfaldlega eftir útboði í birtingar, að sögn Guðmundar. „Vonandi vanda ríkiskaup sig meira í því að koma því út svo það verði ekkert óskýrt í útboðinu. Við bíðum eftir því að útlendingar komi og fari að hjálpa okkur Íslendingum að komast upp úr þessum samdrætti sem er búinn að eiga sér stað hérna síðustu mánuði.“
Í kærunni kom fram að Pipar/TBWA teldi að brotið hafi verið gegn lögum um opinber innkaup með þátttöku M&C Saatchi, þar sem m.a. hafi verið brotið gegn jafnræðisreglu laganna og aukinheldur hafi verið horft fram hjá sérstöku hæfi M&C Saatchi, sem Pipar/TWBA telur að hefði átt að útiloka þátttöku félagsins í útboðinu. Þá er M&C Saatchi bresk auglýsingastofa sem breska fjármálaeftirlitið rannsakar nú vegna bókhaldsmisferlis sem teygir sig nokkur ár aftur í tímann.
Guðmundur segir að Pipar/TBWA standi enn við sína skoðun á málinu sem fram kom í kærunni.
„Við náttúrulega hefðum viljað sjá ýmislegt öðru vísi. Það var ýmislegt sem hægt var að gera athugasemdir við og við gerðum það en þetta var niðurstaðan og nú höldum við áfram.“
Í niðurstöðu kærunefndarinnar segir að þau gögn og upplýsingar sem liggja fyrir nefndinni beri ekki með sér að M&C Saatchi eða einstaklingar sem koma fram fyrir hönd fyrirtækisins hafi verið sakfelldir með endanlegum dómi fyrir svik, spillingu eða önnur brot. Spurður hvort það ætti þó ekki að vera nóg að fyrirtækið sé til rannsóknar af breska fjármálaeftirlitinu segir Guðmundur:
„Þannig var okkar skilningur og við vitum það að ef þetta hefði verið íslensk auglýsingastofa sem hefði verið undir þessum ámælum þá hefðu hlutirnir verið öðruvísi.“