Eldri feður eignast ljótari börn

Þessi mynd er greinilega uppstillt þar sem það er vísindalega …
Þessi mynd er greinilega uppstillt þar sem það er vísindalega sannað að þetta barn er allt of sætt til að eiga svona gamlan föður.

Eldri feður eignast ófríðari börn.

Þetta er niðurstaða vísindamanna við Vínarháskóla. Með aldrinum hætta frumur sem framleiða sæði að afrita DNA karlmannsins jafn nákvæmlega en það leiðir til stökkbreytinga í erfðaefninu.

Vísindamenn báðu sex konur og sex karla um að skoða myndir af 4.018 karlmönnum og 4.416 kvenmönnum á aldrinum 18 til 20 ára og gefa útliti þeirra einkunn. Þeir einstaklingar sem áttu eldri feður voru almennt metnir sem minna aðlaðandi.

„Á 16 ára fresti tvöfaldast tíðni stökkbreytinganna. Aðrir rannsakendur hafa fundið 25 stökkbreytingar í hverju sæði 20 ára karlmanns en í 40 ára karlmanni voru þær 65. Við 56 ára aldur hefur stökkbreytingin aftur tvöfaldast,“ tjáði mannfræðingurinn Martin Fielder við Vínarháskóla The Sunday Times.

„Áhrifin eru greinileg - einstaklingur sem á 22 ára föður við fæðingu er um fimm til tíu prósent meira aðlaðandi en einstaklingur sem á fertugan föður við fæðingu og munurinn eykst með aldursbilinu.“

Á hinn bóginn erfa börn mest 15 stökkbreytingar frá mæðrum sínum óháð aldri þeirra samkvæmt rannsókninni sem birt var í tímaritinu Nature.

Þrátt fyrir að vísindamenn hafi nú lýst því yfir að þau séu ófríðari en önnur biður Monitor börn eldri feðra um að láta það ekki á sig fá enda er fegurðin afstæð. Þess utan kemur jafnframt fram í rannsókninni að börn eldri feðra eru líklegri til að lifa lengur en börn ungra feðra og andlit í gullinsniði gerir víst ekki mikið gagn í gröfinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú virðist vera lag til að fylgja eftir sannfæringu þinni. Yfirmaður þinn eða annar áhrifamikill einstaklingur mun hugsanlega koma þér ánægjulega á óvart í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú virðist vera lag til að fylgja eftir sannfæringu þinni. Yfirmaður þinn eða annar áhrifamikill einstaklingur mun hugsanlega koma þér ánægjulega á óvart í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir