Kæra Ljón
Það verður brjálað að gera hjá þér þennan mánuðinn. Þú ættir að nýta tímann vel og skynsamlegt væri að hjóla í öll ókláruð verkefni. Þú færð líka hrós fyrir vinnuframlag þitt, þetta er uppskerutíminn.
Venus og Júpíter munu hittast í þínu stjörnumerki í upphafi mánaðar. Þetta boðar gott fyrir þig, heppnin verður með þér og rómantíkin mun blómstra. Umkringdu þig góðum vinum og ættingjum.
Þú átt von á góðum fréttum hvað varðar starfsframann. Vertu með augun opin fyrir nýjum tækifærum. Það mun einhver reyna að stela athyglinni frá þér svo vertu á varðbergi. Samt skalt þú ekki láta þá öfundsjúku trufla þig of mikið.
Í kringum 16. júlí munu hlutirnir aðeins róast hjá þér tímabundið. Þá er tími til að undirbúa sig fyrir næsta skell, settu smá áætlun niður á blað áður en hlutirnir fara aftur á flug. Þetta er líka rétti tíminn til að endurskoða heimilisaðstæður og húsnæðismál.
Ef þú ert í sambandi þá munt þú ekki sjá sólina fyrir maka þínum í lok mánaðar.
Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.